Welcome at PINTOMAP, the geographic web search engine for location related services and information. For a start the current prototype includes more than 245,000 articles from Wikipedia that are displayed on Google Maps via Pins, there is more to come.
About PINTOMAP
Sambandslýðveldið Þýskaland (þýska: Bundesrepublik Deutschland; ) er fjölmennasta land Evrópu utan Rússlands og mikið iðnaðarveldi. Landið er í miðju Evrópusambandinu og er aðili að NATO. Lönd sem liggja að Þýskalandi eru í réttsælis röð: Danmörk, Pólland, Tékkland, Austurríki, Sviss, Frakkland, Lúxemborg, Belgía og Holland.
Kasakstan (kasakska: Қазақстан, Alþjóðlega hljóðstafrófið: /qɑzɑqˈstɑn/; rússneska: Казахстан, Alþjóðlega hljóðstafrófið: /kɐzəxˈstɐn/) er stórt land sem nær yfir mikinn hluta Mið-Asíu. Hluti landsins, vestan við Úralfljót, er í Evrópu. Það á landamæri að Rússlandi, Kína og Mið-Asíulöndunum, Kirgistan, Úsbekistan og Túrkmenistan og strandlengju við Kaspíahaf. Kasakstan var áður Sovétlýðveldi og er nú aðili að Samveldi sjálfstæðra ríkja.
Lýðveldið Ungverjaland (Magyarország) er landlukt land í Mið-Evrópu og á landamæri við Úkraínu, Austurríki, Rúmeníu, Slóvakíu, Serbíu, Króatíu og Slóveníu. Stærstur hluti Ungverjalands eru frjósamar sléttur og er landbúnaður afar mikilvæg atvinnugrein.
Rúmenía er land í Suðaustur-Evrópu vestur af Svartahafi. Rúmenía á landamæri við Úkraínu og Moldóvu í norðaustri, Ungverjalandi og Serbíu í vestri og Búlgaríu í suðri.
Lýðveldið Slóvakía (slóvakíska: Slovensko) er landlukt land í Mið-Evrópu. Það á landamæri að Austurríki og Tékklandi í vestri, Póllandi í norðri, Úkraínu í austri og Ungverjalandi í suðri.